Keldan ehf. hagnaðist um 25 milljónir króna á síðasta ári. Félagið, sem rekur meðal annars vefsíðuna Keldan. is, hafði 30,6 milljónir króna í tekjur og voru tekjurnar um 13% meiri en árið á undan.

Keldan er að fullu í eigu félagsins Kóða. Það greiddi engan arð á árinu, en lánaði móðurfélagi sínu um 35 milljónir króna. Thor Thors er framkvæmdastjóri Keldunnar og Kóða.