Rekstrartekjur Klappa Grænna Lausna jukust um 26,6% á fyrri hluta ársins og námu 124,4 milljónum kóna á fyrri hluta ársins 2018 samanborið við 98,2 milljónir króna árið áður. Þá var EBITDA félagsins jákvæð um 9,6 milljónir króna samanborið við 16,2 milljón króna EBITDA tap á sama tíma fyrir ári. Rekstrargjöld voru 114,8 milljónir króna og eru nær óbreytt milli ára.

Heildareignir félagsins námu 334,7 milljónum króna í lok júní 2018. Þar af voru fastafjármunir 209,0 milljónir króna og veltufjármunir 125,7 milljónir króna Eigið fé nam 246,3 milljónum króna eiginfjárhlutfall í lok júní 2018 var 73,6%, en var 71,7% í árslok 2017. Heildarskuldir félagsins voru í lok júní 88,4 milljónir króna.

Veltufé frá rekstri var jákvætt á tímabilinu og nam 7,2 milljónum króna. Handbært fé til rekstrar nam 39,4 milljónum króna á tímabilinu, en nam 3,6 milljónum króna á sama tíma fyrra árs. Fjárfestingarhreyfingar voru neikvæðar um 12,5 milljónir króna. Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 1,6 milljónir króna. Handbært fé lækkaði því um 53,5 milljónir króna á tímabilinu og var í lok júní 16,6 milljónir króna.

Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa, segir í tilkynningu að vöxturinn skýrist einkum af aukinni notkun á grunnkerfinu Klappir Core, fjölgun skráðra aðila, sem séu orðnir um 200, og að hver notandi nýti sífellt fleiri hugbúnaðarþjónustur.

Jón býst við að rekstur Klappa taki enn frekari breytingum á næstu misserum. „Á fyrri hluta ársins 2018 var lögð áhersla á að efla gagnanet Klappa en það er mikilvægt framlag félagsins til uppbyggingar á umhverfisinnviðum hér á landi. Nú geta þúsundir notenda úr ólíkum atvinnugreinum nýtt sér grunnkerfið, Klappir Core, til að mæla vistsporið af starfsemi sinni, sett sér markmið og fylgst með árangrinum. Það er ánægjulegt að sjá hvernig aukið vöruframboð, samþætting á vörunum og öflugir gagnainnviðir hafa orðið til þess að notendum fjölgar jafnt og þétt. Sala til nýrra notenda er í gegnum boðskerfi Klappa. Þar geta notendur boðið viðskiptavinum sínum eða birgjum að tengjast grunnkerfinu og þannig geta nýjir aðilar tekið fyrstu skrefin í átt að skipulagðri umhverfisstjórnun. Þjónustutekjur vegna styrkja og endurgreiðslu skatta hafa haft jákvæð áhrif reksturinn og getu félagsins til að styrkja og efla grunninnviði hugbúnaðarins,“ segir Jón.

Þá sé hafinn undirbúningur að erlendri starfsemi félagsins með viðræðum við mögulega samstarfsaðila á erlendum mörkuðum. „Ágúst Sindri Karlsson, stjórnarformaður Klappa, hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Klappir International Ltd., sem er 100% í eigu Klappa og heyrir beint undir móðurfélagið. Helsta hlutverk Klappir International Ltd. verður að annast samskipti við erlenda samstarfsaðila og þróa leiðir nýjar leiðir til samstarfs í því augnamiði að dreifa hugbúnaðarlausnum Klappa,“ segir Jón.