Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs var neikvætt um 72,7 milljarða króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2010 en var neikvætt um 122,8 milljarða króna á sama tímabili 2009. Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2010 liggur nú fyrir.

Tekjur reyndust um 44,2 milljörðum hærri en í fyrra á meðan að gjöldin drógust saman um 12,6 milljarða króna milli ára.

Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um rúma 105 milljarða króna, segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-nóvember 2010 .