Flugfélag Skúla Mogensen, Wow air jók tekjur sínar um 104% milli ára á þriðja ársfjórðungi ársins. Námu þær 15,3 milljörðum króna á tímabilinu, en rekstrarhagnaðurinn (EBITDA) nam 4,1 milljörðum króna. Er það aukning um 1,7 milljarða milli ára.

Hagnaður félagsins á þriðja ársfjórðungi nam 3,5 milljörðum króna, en á þriðja ársfjórðungi ársins 2015 nam hann 1,5 milljarði króna.

Flugu 629 þúsund félagar með flugfélaginu á þriðja ársfjórðungi sem er aukning um 122% milli áranna. Hélst sætanýtingin í 90% milli áranna þrátt fyrir 153% aukningu í framboðnum sætiskílómetrum.

Einnig tvöföldun fyrstu níu mánuðina

Ef horft er til fyrstu níu mánuða ársins nam rekstrarhagnaður Wow air tæpum 6 milljörðum og heildartekjurnar 27 milljörðum fyrstu níu mánuði ársins.

Heildartekjur Wow air fyrstu níu mánuði ársins voru 27 milljarðar króna sem er aukning um 105% milli ára.

Ef horft er á rekstrarhagnaðinn án afskrifta (EBITDA) á tímabilinu nam hann 5,9 milljörðum króna, en á sama tímabili árið 2015 var hann 2,2 milljarðar króna. Hagnaðurinn á tímabilinu nam 4,4 milljörðum króna samanborið við 1,5 milljarða króna hagnað árið 2015.

Nærri 700 manns starfa hjá félaginu

„Við höfum fjárfest mikið í uppbyggingu WOW air á undanförnum árum og ekki síst fyrir síðastliðið sumar þar sem við bættum við þremur nýjum Airbus A330 breiðþotum og hófum flug til Los Angeles og San Francisco,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.

„Til að mæta þessari miklu aukningu höfum við ráðið hundruði starfsmanna á árinu og heildarfjöldi starfsfólks WOW air er að nálgast 700 manns.  Þetta er frábært teymi sem á mikinn heiður skilið eftir þrotlausa vinnu síðastliðin 5 ár og endurspeglast það í góðri afkomu félagsins.“