Tekjuafkoma hins opinbera reyndist neikvæð um 1,8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2014 samkvæmt tölum Hagstofunnar , en það er mun hagstæðari niðurstaða en á sama tíma 2013 þegar hún var neikvæð um 11 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 0,4% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 0,9% af tekjum hins opinbera.

Heildartekjur hins opinbera jukust um 8,0% milli annars ársfjórðungs 2013 og 2014. Skýrist tekjuaukningin fyrst og fremst af auknum skatttekjum sem jukust um 6,8% frá sama ársfjórðungi 2013.

Heildarútgjöld hins opinbera jukust jafnframt um 3,1% milli annars ársfjórðungs 2013 og 2014. Sú útgjaldaaukning skýrist aðallega af aukinni fjárfestingu og meiri launakostnaði. Magnbreyting samneyslu hins opinbera á öðrum ársfjórðungi 2014 mældist 1,3% en var 1,0% fyrir sama ársfjórðung 2013.