Tvö leiguverkefni rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar féllu niður á árinu 2020, að því er fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni.

„Bæði þessi leiguverkefni féllu niður vegna hagræðingar og Covid 19. Tekjutap stofnunarinnar vegna þessa var um 140 milljónir króna,“ segir í tilkynningunni.

„Annars vegar var um að ræða 30 daga leigu til norsku hafrannsóknastofnunarinnar en hins vegar leigu á skipinu í 8 daga í gegnum Evrópuverkefnið Eurofleet.“

Rekstur stofnunarinnar var hins vegar í jafnvægi á árinu þrátt fyrir að heimsfaraldur, bilanir á skipum og flutningur í nýjar höfuðstöðvar í Hafnarfirði hafi sett mark sitt á fjárhaginn.

Tekjur stofnunarinnar á árinu 2020 námu samtals 4,2 milljörðum króna og voru rúmlega 212 milljónum króna lægri en árið 2019. Á sama tíma tókst hins vegar að lækka útgjöld um 229 milljónir króna úr rúmum 4.4 milljörðum króna árið 2019 í tæpa 4,2 milljarða króna árið 2020.

Afgangur varð afkomu ársins upp á 41 milljón króna.

„Um leið og hægt var hóf stofnunin að skima áhafnir og rannsóknarfólk fyrir Covid 19 áður en haldið var í lengri túra og hefur gengið vel að tryggja sóttvarnir um borð. Þrátt fyrir þessar mjög svo krefjandi ytri aðstæður komust skipin í alla rannsóknarleiðangra ársins og féll ekki úr einn einasti túr.“

Úthaldsdagarnir fleiri

Þá segir að útgerð rannsóknaskipanna árið 2020 hafi breyst talsvert frá því sem lagt var upp með í byrjun árs.

„Úthaldsdagarnir urðu mun fleiri en ráðgert hafði verið eða 362 miðað við 326 árið 2019. Árna Friðrikssyni var haldið úti í 218 daga og Bjarna Sæmundssyni í 144 daga. Auk tveggja leiguverkefna sem féllu niður og áður var getið um varð sú breyting á upphaflegri skipaáætlun að Árni Friðriksson var notaður í haustrallið vegna þess að ekki fékkst leiguskip í það verkefni. Skip stofnunarinnar voru því notuð mun meira í eigin rannsóknir en áætlað hafði verið.

Bjarni Sæmundsson hóf árið 2020 í Slippnum í Reykjavík þar sem skipt var um vélarblokk. Skera þurfti gat á síðu skipsins til að ná út ónýtri vélinni. Bjarni var þó kominn í stand og sjófær á réttum tíma til að rannsaka ástand sjávar í leiðangri sem hófst 10. febrúar. Bjarni endaði árið mjög vel en þann 17. desember voru liðin 50 ár frá smíði skipsins. Veisluhöld vegna þess bíða betri tíma.

Árni Friðriksson kom til hafnar 2. nóvember úr haustralli sem var jafnframt síðasti leiðangur hans á árinu. Eftir það var farið í talsvert viðhald á skipinu, þar sem rafall nr. 1 hafði bilað og í ljós kom að segulmögnunarvél var ónýt og þurfti að vefja hana upp á nýtt. Í kjölfarið var farið í fyrirbyggjandi viðhald á öðrum rafölum.“