Georg Haraldsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Stafrænna lausna og upplýsingatækni hjá Íslandspósti en hann hefur starfað hjá Póstinum sem forstöðumaður stafrænnar þjónustu síðan síðasta sumar. Skipulagsbreytingin hefur þegar tekið gildi og mun Georg einnig bera ábyrgð á upplýsingatækni fyrirtækisins. Pósturinn greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

„Við erum stanslaust að vinna að því að sníða fyrirtækið að raunaðstæðum í rekstrarumhverfinu en með þessum breytingum náum við fram auknum slagkrafti í upplýsingatæknimálunum okkar auk þess að leggja enn meiri áherslu á stafrænu vegferðina mikilvægu. Með þessum breytingum erum við að fækka enn meira í hópi yfirstjórnenda og lækka þar með launakostnað félagsins og minnka yfirbyggingu. Pósturinn hefur þurft að kveðja margt gott fólk á liðnum mánuðum og það er mikilvægt að sú hagræðing komi fram á öllum stigum fyrirtækisins og að við séum stanslaust að vinna að hagræðingu og umbótum. Við höfum náð nokkuð góðum tökum á fjárhagslegum hliðum rekstrarins en stóra verkefnið á þessu ári er að stórbæta þjónustu til viðskiptavina okkar en þar spila upplýsingatækni og stafrænar lausnir algjört lykilhlutverk. Pósturinn hefur á að skipa gríðarlega öflugu teymi sérfræðinga á þessum sviðum og ég efast ekki um að Georg mun koma sterkur inn sem leiðtogi í þann hóp og keyra málin áfram.“ er haft eftir Birgir Jónsson, forstjóra Íslandspósts, í tilkynningunni.

„Það er mikill heiður að vera treyst fyrir þessu hlutverki á þeim spennandi tímum sem eru framundan hjá Póstinum. Hjá félaginu starfar öflugur hópur af fólks sem ég hlakka til að vinna með í þeim fjölmörgu verkefnum sem eru í pípunum. Félagið er að fara í gegnum ákveðið breytingaferli þar sem áhersla verður lögð á viðskiptavinamiðaðar lausnir sem eru byggðar á sjálfvirknivæðingu og nýjustu tækni. Við sjáum fram á spennandi tíma með viðskiptavinum okkar þar sem við munum kynna mikið af nýjum lausnum á næstunni sem munu gera viðskipti við Póstinn ánægjulegri og færa okkar hratt inn í framtíðina," segir Georg Haraldsson í tilkynningunni.

Georg kom til Póstsins síðasta sumar frá Iceland Travel þar sem hann gegndi hlutverki forstöðumanns viðskiptastýringar. Áður var Georg búsettur í Dubai, þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri Marorku í Miðausturlöndum og leiddi þar uppbyggingu félagsins á fjarmörkuðum. Georg hefur einnig starfað við stafræna þróun hjá Völku, Iceland Express og Dohop. Hann er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og er einnig með meistaragráðu í alþjóða-viðskiptum frá HR og IE Business School. Hann er kvæntur Hjördísi Jónsdóttir  og eiga þau fjögur börn. Georg er ástríðukokkur, golfari, söngvari og grjótharður KR-ingur.