Sóltún öldrunarþjónusta hefur tekið við rekstri hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði í kjölfar útboðs Ríkiskaupa fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands á síðasta ári. Sóltún öldrunarþjónusta tekur við rekstrinum af ríkinu sem hefur rekið heimilið síðan 1991.

,,Við teljum hér vera spennandi tækifæri á Sólvangi og hlökkum til að bjóða upp á hjúkrunarþjónustu sem byggir á hugmyndafræði sem hefur gefið mjög góða raun á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík, en það hefur verið rekið við góðan orðstír til margra ára. Hugmyndafræði Sóltúns hefur umhyggju fyrir einstaklingnum í fyrirrúmi, þar sem sjálfræði hans er virt í allri umönnun. Heimilisandi og virðing fyrir einkalífi hvers íbúa er ráðandi um leið og öryggiskennd sem hlýst af sambýli og sólarhrings hjúkrunarþjónustu er náð. Athafnir daglegs lífs eru viðfangsefnið með áherslu á þátttöku íbúa og aðstandenda þeirra eftir getu, óskum og vilja hvers og eins,” segir Halla Thoroddsen, nýr framkvæmdastjóri Sólvangs.

Seinkun á nýju húsnæði
Nýtt húsnæði á Sólvangi átti að afhendast í ársbyrjun en seinkun hefur orðið á afhendingu frá verktakanum. Vonir standa til að húsnæðið verði tilbúið í júní næstkomandi. Þá munu 59 íbúar Sólvangs flytjast yfir og eitt rými í viðbót bætist við. Áætlað er að fara í endurbætur á eldra húsnæðinu sem byggt var 1953 og eftir endurbætur verða þar 33 ný rými. Einnig mun Sóltún öldrunarþjónusta sjá um rekstur 14 rýma í dagdvöl á Sólvangi.

Sóltún öldrunarþjónusta rekur einnig Sóltún Heima sem hefur boðið upp á persónulega heimaþjónustu, heimahjúkrun og heilsueflingu fyrir eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu sem miðar að því að efla, styrkja og styðja aldraða í sjálfstæðri búsetu. ,,Með Sólvangi getur félagið boðið upp á samfellu í þjónustu við aldraða á höfuðborgarsvæðinu og létt undir með fjölskyldum á heimili þeirra á meðan beðið er eftir hjúkrunarrými," segir Halla ennfremur.