Yfirtaka Landsbankans [ LAIS ] og Cenkos Securities  á viðskiptabankanum Close Brothers er á lokastigum, ef marka má heimildamann The Daily Telegraph í frétt sem birtist í dag.

Samkvæmt heimildamanni The Daily Telegraph gæti jafnvel verið tilkynnt um kaupin í þessari viku.

Annar heimildamaður blaðsins sagði að hlutirnir gerðust hratt en vikur frekar en dagar gætu verið í tilboð sem stjórn Close Brothers styður.

Ekki þarf lengi að bíða þar til áreiðanleikakönnun á Close Brothers verði lokið, að því er fram kemur í fréttinni.

Ef af kaupunum verður, kaupir Landsbankinn bankahluta Close Brothers, en Cenkos Securities eignastýringarsviðið og fyrirtækjaráðgjöfina.