Það heldur aftur af fjárfestingu í atvinnulífinu að mörg fyrirtæki eru of skuldsett til að geta nýtt sér tækifæri á markaði og þurfa jafnvel að fara í enn frekari afskriftir í vetur.

Þetta er mat tveggja sérfræðinga hjá Landsbankanum annars vegar og hjá Íslandsbanka hins vegar, sem Morgunblaðið vísar í. Báðir vísa sérfræðingarnir til þess að spár umhagvöxt eftir efnahagshrunið haustið 2008 hafi ekki gengið eftir. Mörg fyrirtæki hafi því vaxið hægar en spáð var.

Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki vera sannfærður um að grípa þurfti til frekari almennra afskrifta hjá skuldsettum fyrirtækjum. Aftur á móti sé víst að áhrif skulda á fjárfestingu, sem nú er í sögulegu lágmarki, séu verulega vanmetin