Aðilar í sambærilegri stöðu eru meðhöndlaðir með ólíkum hætti. Þetta segir Hjördís Birna Hjartardóttir, lögmaður á Málflutningsstofu Reykjavíkur, um svokallaða 50/20 reglu.
Hjördís segir það hafa sýnt sig að þessi skattlagning lendi fyrst og fremst á þeim sem síst skyldi, þ.e. á litlum og meðalstórum fyrirtækjum.