Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til að efla lítil og meðalstór fyrirtæki og fyrirtæki í tækni- og hugverkaiðnaði.

Í umsögn Viðskiptaráðs kemur meðal annars fram að það telji skattaívilnanir vegna fjárfestingar í litlum og meðalstórum fyrirtækum vera óæskilegar. Framleiðni smærri fyrirtækja sé að meðaltali lægri en stærri fyrirtækja og því séu skattalegir hvatar til hana smærri fyrirtækjum umfram þau stærri til þess fallnir að draga úr framleiðni atvinnulífsins. Hins vegar megi færa rök fyrir skattalegum hvötum til að auka fjárfestingar í nýsköpun hérlendis.

Viðskiptaráð fagnar því hins vegar að í þingsályktunartillögunni sé gert ráð fyrir að skattalegir hvatar nái einnig til þeirra sem fjárfesti í fyrirtækjum í gegnum fjárfestingasjóði. Þannig geti einstaklingar takmarkað áhættu sína án þess að missa skattaafsláttinn. Einnig telur ráðið hækkun á heimild lífeyrissjóða til að fjárfesta í óskráðum verðbréfum upp í 25% vera til bóta, þar sem heimildin kunni að auka aðgengi nýsköpunar- og sprotafyrirtækja að fjármagni.

Þá segir í umsögninni að Viðskiptaráð telji rétt að lækka tryggingagjaldið. Ávinningur lægra tryggingagjalds skili sér sérstaklega vel til sprota- og nýsköpunarfyrirtækja, en sé stærsti hluti kostnaðar þeirra í formi launa.

Umsögn Viðskiptaráðs má nálgast hér .