,,Ef farið verður að tillögum fiskifræðinga varðandi veiðar á norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna á næsta ári, gæti útflutningsverðmæti afla uppsjávarveiðiskipa HB Granda dregist saman um 600 milljónir króna, miðað við að makrílaflinn skiptist svipað milli þjóða, sem rétt hafa til makrílveiða, og hann gerði á þessu ári,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, á heimasíðu félagsins og Fiskifréttir fjalla um. „Það er reyndar mikil óvissa ríkjandi hvað varðar makrílinn. Samkomulag hefur ekki tekist um skiptingu kvótans og sömuleiðis draga margir í efa að stofnstærðarmatið sé rétt,“ segir hann.

Fram kemur að nýlega hafi ráðgjafanefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins lagt til verulega skerðingu á heildaraflamarki norsk-íslenskrar vrgotssíldar og makríls á næsta ári. Samkvæmt því líti út fyrir að aflamark HB Granda í norsk-íslenskri síld muni dragast asaman um 4.300 tonn á næsta ári og fara í um 12.600 tonn.

Frétt Fiskifrétta