Hæstaréttarlögmennirnir Ragnar Hall og Helgi Sigurðsson sendu Ragnhildi Hjaltadóttur, ráðuneytisstjóra í innanríkisráðuneytinu, bréf þar sem þeir lýsa áhyggjum sínum af því að við rannsóknir á umboðssvikum í efnahagsbrotamálum hafi verið vikið frá hefðbundnum sjónarmiðum um skýrleika refsiheimilda. Fréttablaðið greinir frá málinu.
Í bréfinu til ráðuneytisins segja lögmennirnir að við rannsóknir á umboðssvikamálum hafi verið vikið frá hefðbundnum sjónarmiðum um skýrleika refsiheimilda, huglæga afstöðu meints brotamanns um að afla sér eða öðrum fjárhagslegs ávinnings og að hann hafi skapað umbjóðanda sínum verulega fjártjónshættu. „Þá virðist engu máli skipta þótt meintur brotamaður hafi fengið samþykki eftirá fyrir tiltekinni ráðstöfun,“ segir í bréfinu.
Einnig segja þeir að sú spurning hljóti að vakna hvort fjöldi þeirra umboðssvikamála sem séu til rannsóknar sé tilkominn vegna nýrrar túlkunar á umboðssvikaákvæðinu og hvort lögskýringar sem út úr því hafi komið séu í samræmi við það sem viðurkennt er í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Ráðuneytisstjóri hefur fyrir hönd ráðherra óskað eftir því við réttarfarsnefnd að athugasemdir lögmannanna verði teknar til skoðunar.