Telma Sæmundsdóttir hefur tekið við starfi markaðssérfræðings hjá Orku náttúrunnar.

Síðustu tvö ár hefur Telma starfað sem verkefnastjóri í Opna háskólanum, en á árunum 2006 til 2013 var hún verkefnastjóri MBA-námsins hjá Háskólanum í Reykjavík. Einnig hefur hún starfað sem fararstjóri hjá Úrvali Útsýn.

Telma er með B. Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M. Sc. í Marketing Communication Management frá Copenhagen Business School.