Telma Eir Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin rekstrarstjóri (COO) hjá SalesCloud og hefur hún þegar hafið störf. Hún mun bera ábyrgð á daglegum rekstri fyrirtækisins, mannauðsmálum og upplýsingagjöf til stjórnar.

Telma starfaði áður sem framkvæmdastjóri Sambands íslenskra framhaldsskólanema og Félags viðskipta- og hagfræðinga ásamt því að sinna stjórnarsetu.

Hún er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst. Eiginmaður Telmu er Eyþór Mar Halldórsson og eiga þau einn son.

Telma Eir Aðalsteinsdóttir:

„Það er einstaklega spennandi að ganga til liðs við SalesCloud á þessum tímapunkti þegar fyrirtækið er að ganga í gegnum mikinn vöxt. Ég þekkti félagið vel frá sjónarhóli viðskiptavinar og vissi að vörur félagsins bjóða upp á fjölmarga möguleika þegar kemur að greiðslulausnum en það er mjög gaman að kynnast félaginu upp á nýtt innan frá og þá sérstaklega að komast að því hversu ríkt það er af mannauði. Næstu mánuðir verða viðburðaríkir hjá SalesCloud þar sem fjölgun í starfsliði, aukið vöruúrval og sókn á erlenda markaði munu spila lykilhlutverk.“

Helgi Andri Jónsson, forstjóri SalesCloud:

„Ég er mjög stoltur af því að fá Telmu inn í teymið. Á skömmum tíma hefur hún þegar haft mjög jákvæð áhrif á teymið og fyrirtækið sjálft. Ég er viss um að við séum mun líklegri til að ná öllum markmiðum okkar með Telmu í stjórnendateyminu.“

SalesCloud tryggði sér fyrr á árinu yfir 500 milljóna króna fjármögnun frá SaltPay og hópi íslenskra fjárfesta. Fyrirtækið býður upp á lausnir sem auðvelda litlum og meðalstórum fyrirtækjum að auka sölu í verslunum og á netinu, með sölukerfi í skýinu.