Verðbólga nær hámarki í rúmum 14% í ágúst, að mati greiningardeildar Landsbankans. Hratt dregur úr verðhækkunum í haust þegar gengi krónunnar verður orðið stöðugra. Verðbólga næstu 12 mánuði verður ríflega 5% að því gefnu að forsendur greiningardeildar um launaþróun gangi eftir.   „Við teljum að það taki ívið lengri tíma en við höfum áður reiknað með að koma böndum á verðbólguna. Krónan er mun veikari en við áttum von á og framvinda alþjóðlegu fjármálakreppunnar gefur litla von um að sú þróun gangi til baka í bráð. Við eigum von á því að verðbólga mælist um 12% frá upphafi til loka þessa árs en stærstur hluti þeirrar hækkunar er þegar kominn fram. Samkvæmt spá okkar verður verðbólga í námunda við verðbólgumarkmiðið í lok árs 2009,“ segir greiningardeildin.