Ef miðað er við vísitölu neysluverðs hefur áfengisgjald af léttvíni og bjór því rýrnað að raunvirði sem nemur 33% frá 1998 að því er kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. Breyting á áfengisgjaldi af sterku áfengi átti sér síðast stað í nóvember 2004 og ef aftur er miðað við vísitölu neysluverðs hefur áfengisgjald af sterku áfengi rýrnað að raunvirði sem nemur 13% frá síðustu breytingu segir í vefritinu.

Í tilefni af umræðum að undanförnu um áfengisgjald telur vefritið ástæðu til að rekja stuttlega lagaákvæði um áfengisgjald og þróun þess síðustu árin. Samkvæmt lögum um gjald af áfengi og tóbaki frá 1995 er áfengisgjald lagt á hvern sentilítra af vínanda í hverjum lítra hins áfenga drykkjar umfram 2,25 sentilítra. Af bjór er áfengisgjaldið 58,7 kr. en af léttvíni er áfengisgjaldið 52,8 kr. á hvern sentilítra umfram 2,25 sentilítra. Af sterku áfengi er áfengisgjaldið 70,78 kr. á hvern sentilítra.


Breyting á áfengisgjaldi af léttvíni og bjór átti sér síðast stað þann 1. júlí 1998. Frá því að sú breyting átti sér stað hefur vísitala neysluverðs hækkað úr 183,6 stigum í 273,0 stig.