Whitney Tilson stofnandi Kase Capital segir Berkshire Hathaway vera undirverðlagt.
Hann telur að gengi bréfanna geti hækkað um allt að 30% á næstu tólf mánuðum.
Tilson hefur legið yfir félaginu og telur fjárfestingar þess vera þess eðlis að enn sé mikils vaxtar að vænta.
Hann telur því að verðið muni fara upp í 296.000 til 324.000 dali á hlut.