Ríkisendurskoðun bendir á að lyfjakostnaður Sjúkratrygginga Íslands var 15,1 milljarður króna árið 2015. „Heilbrigðisstofnanir hafa ótvírætt tækifæri til að draga úr þeim kostnaði með fjölþjóðlegu samstarfi við lyfjaútboð og er velferðarráðuneyti hvatt til að beita sér fyrir þátttöku Landspítala í slíku samstarfi,“ segir í frétt sem stofnunin sendi frá sér.

Í fyrri skýrslu sem að Ríkisendurskoðun vann var velferðarráðuneyti hvatt til að leita frekari leiða til að fá aðgang að stærri lyfjamörkuðum með það að markmiði að draga úr lyfjakostnaði. Ráðuneytið bendir á með nýjum lögum um opinber innkaup hafi verið dregið úr þeim hindrunum sem áður voru í vegi fjöl- eða alþjóðlegs samstarfs um útboð lyfjakaupa.

Hins vegar benti stofnunin á mikilvægi þess að skilgreina fyrir fram hvernig meta eigi árangur af viðamiklum breytingum á heilbrigðiskerfinu. „Ríkisendurskoðun telur að þau markmið, tímasettar aðgerðir og árangursmælikvarðar sem fram koma í frumvarpi til fjárlaga 2017 og í lyfjastefnu ráðuneytisins sýni að ráðuneytið hafi komið til móts við þessa ábendingu,“ segir að lokum í fréttinni.