Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi borgarstjóri, telur framboð sitt til formanns flokksins styrkja stöðu hans í næstu kosningum. Þetta segir Hanna Birna í tilkynningu til fjölmiðla.

Yfirlýsing Hönnu Birnu í heild:

„Í nærri 20 ár hef ég helgað mig baráttunni fyrir betra samfélagi. Ég hef gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum innan Sjálfstæðisflokksins og nú síðast sem borgarstjóri.

Síðustu vikur hefur það ítrekað komið fram að mikill meirihluti sjálfstæðismanna telur að nú sé rétti tíminn til að ég gefi kost á mér sem formaður flokksins. Þannig geti Sjálfstæðisflokkurinn tekið af skarið í þeirri endurnýjun sem þarf að eiga sér stað í íslenskum stjórnmálum. Endurnýjun er nauðsynleg til að traust á stjórnmálum aukist á ný. Ég hef því ákveðið að gefa kost á mér sem formaður Sjálfstæðisflokksins.

Ég trúi því að framboð mitt styrki stöðu Sjálfstæðisflokksins í næstu kosningum. Formannskjörið snýst einfaldlega um það, hver sé líklegastur til að leiða okkur sjálfstæðismenn til sigurs í næstu kosningum. Með sigri getum við rofið kyrrstöðuna sem hvílir eins og mara á þjóðinni. Við viljum auka val fólksins og minnka umsvif hins opinbera. Við verðum að koma vinstri stjórninni frá til að auka atvinnu, lækka skuldir heimilanna og tryggja að Ísland verði land tækifæra, lífsgæða og farsælla lausna.

Eitt mikilvægasta viðfangsefni næstu ríkisstjórnar er að lækka skatta. Þegar ég var borgarstjóri fannst mér mestu máli skipta að við hækkuðum ekki skatta á borgarbúa. Í stað þess að hækka skatta drógum við saman í stjórnsýslunni og hagræddum í rekstri borgarinnar í góðri sátt við íbúa. Þannig fór Reykjavíkurborg í gegnum erfiðasta hluta niðursveiflunnar. Við sýndum og sönnuðum að það er hægt að ná miklum árangri á erfiðum tímum án þess að hækka skatta.

Sjálfstæðismenn þekkja mig af þessum störfum og hafa hvatt mig til að færa þessar áherslur inn í landsmálin, enda séu nýjar áherslur og ný vinnubrögð forsenda þess að okkar bíði nýtt upphaf. Ég er reiðubúin að helga því verkefni alla mína krafta. Kosningarnar næst þurfa að tryggja að þjóðin fái starfhæfa ríkisstjórn og Sjálfstæðisflokkurinn á þar að vera leiðandi afl. Til þess að svo geti orðið þarf hann að verða sterkari, njóta meiri stuðnings og aukins trausts.

Komandi landsfundur er einn sá mikilvægasti í sögu Sjálfstæðisflokksins. Bæði vegna þeirra málefna sem þar verður tekin afstaða til en líka vegna þess að á landsfundinum er það meginverkefni landsfundarfulltrúa að velja formann sem leiðir Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í næstu kosningum.

Ég er reiðubúin í það og mun því óska eftir stuðningi sem formaður Sjálfstæðisflokksins.

3. nóvember 2011

Hanna Birna Kristjánsdóttir“