Halla Þórhallsdóttir, greinandi hjá Kaupþingi, telur ólíklegt að aðrir bankar fari sömu leið og Glitnir en segir að bankarnir hafi vitaskuld áhrif á hvern annan. Þetta kemur fram á fréttaveitu Dow Jones.

Íslenska ríkið hefur ákveðið að leggja til nýtt hlutafé inn í Glitni, sem nemur 600 milljónir evra eða 85 milljarðar króna.