Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, telur vel hægt að færa til fé í ríkisrekstrinum þannig að ekki þurfi að afla 200 milljóna króna með legugjöldum.

Kveðst Vigdís, í samtali við Morgunblaðið, jafnvel sjá fyrir sér að það takist að finna enn meira fé til reksturs sjúkrahúsanna með frekari tilfærslu ríkisútgjalda. Þá kunni hagræðingarhópurinn, sem Vigdís á sæti í, að finna sparnaðarleiðir sem geri kleift að gera enn betur við sjúkrahúsin.

„Ég hef sagt að það sé vel svigrúm í fjárlögunum til að færa fé milli málaflokka, sé til þess pólitískur vilji. það er mikil krafa um að það verði kmiið til móts við Landspítalann og Sjúkrahúsið á Akureyri,“ segir Vigdís Hauksdóttir í samtali við Morgunblaðið