Samskip hafa hafið samstarf við dótturfélags austurríska járnbrautarfélagsins ÖBB sem munu tengja flutninganet fyrirtækjanna svo úr verði fyrsta óslitna lestartengingin sem nær alla leið frá Tyrklandi til Skandinavíu að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Samskipum.

„Þann 1. janúar 2017 hefst nýr kafli í samstarfi Samskipa og Rail Cargo Group (sem er hluti af austurríska járnbrautarfélaginu ÖBB) með beinum lestarflutningum milli Rúmeníu og Svíþjóðar,“ segir í tilkynningunni.

„Félögin munu tengja  flutninganet sín saman um járnbraut milli Curtici í Rúmeníu og helstu flutningamiðstöðva í Svíþjóð

Fyrsta óslitna lestartengingin

Nýja þjónustan tengir tvær flutningsleiðir sem þegar eru í rekstri þannig að úr verður fyrsta óslitna lestartengingin milli Austur-Evrópu og Skandinavíu í gegnum fullkomna lestarstöð Samskipa í Duisburg í Þýskalandi.

Curtici, sem er við vesturlandamæri Rúmeníu, er svo einn helstu tengipunkta í lestarkerfi Mið-Evrópu, þar á meðal með beinar tengingar til Búkarest, höfuðborgar landsins.“

Áreiðanlegri flutningstími

Frank Gielen, þróunarstjóri járnbrautarflutninga hjá Samskipum í Hollandi, segir flutninga með lest vera áreiðanlegri kost.

„Þeir sem vilja senda vörur milli þessara svæða hafa til þessa neyðst til að reiða sig á þjóðvegina, þar sem hætt er við umferðartruflunum og lítt hægt að reiða sig á afhendingartíma,“ segir Frank

„Auk þess sem dregið er umtalsvert úr útblæstri við hverja flutta einingu.“

Fyrst með beinar tengingar milli Tyrklands og Skandinavíu

Max Kindler, viðskiptastjóri Rail Cargo Group Intermodal, er hæstánægður með samstarfið.

„Fyrirtækin tvö verða með þessu þau fyrstu til að bjóða beinar tengingar milli Tyrklands og Skandinavíu, þegar saman leggjast járnbrautartengingar Rail Cargo Group milli Tyrklands og Rúmeníu og Rúmeníu og Þýskalands og flutningsnet Samskipa frá Duisburg til ýmissa áfangastaða í Skandinavíu,“ segir Max.

„Markaðnum býðst með þessu; aukin tíðni flutninga, skemmri flutningstími og samkeppnishæft verð“

Samkeppnishæft við flutninga með bílum

Tilkynningin segir þessa flutningaleið fyllilega samkeppnishæfa við flutninga með bílum og hægt verði að flytja vörur frá Curtici til Stokkhólms á fjórum til fimm virkum dögum.

„Umtalsverð uppbygging hefur orðið á sviði lestarsamgangna í Rúmeníu síðustu ár, svo sem með nýrri tengingu við Búlgaríu yfir Dóná, sem er hluti af Sam-Evrópska Corridor IV-samgöngunetinu, og enduruppbyggingu járnbrautar milli hafnarinnar í Constanta og Búkarest,“ segir í tilkynningunni.

„Curtici tengir áfangastaði í Mið- og Austur-Evrópu um leið og hún er tengipunktur við Vestur-Evrópu. Til að byrja með er áætlað að ferðir milli Duisburg og Curtici verði fjórar í viku hverri en fleiri þegar fram í sækir.

Nóg að eiga samskipti við Samskip

Hagræði viðskiptavina eykst þar sem þeir þurfa einungis að eiga við Samskip um flutninginn á milli svæðanna og njóta um leið aðgangs að notendavænu vefsvæði þar sem haldið er utan um bókanir og hægt að fylgjast með stöðu sendinga.

Þá skilar kerfið af sér sjálfvirkum tilkynningum um brottför og komu sendinga viðskiptavinum einnig til hagræðis.

Ný flutningsleið frá Curtici með tengingu við lestarflutningamiðstöð Samskipa í Þýskalandi eykur umfang og þéttir enn frekar flutningsnets Samskipa í Mið- og Austur-Evrópu og tengir Svíþjóð og Danmörku í norðri við Ítalíu og Tyrkland í suðri.“