Breska blaðið Daily Telegreph tengir söluna á hlut FL Group í easyJet við þá erfiðleika sem steðjað hafa á íslenskum fjármálamarkaði.

Í frétt á netsíðu blaðsins kemur fram að öllum á óvörum hafi JP Morgan bankinn hafið í gær að selja um 65 milljón hluti í easyJet á verði milli 340 pence og 343 pence. Ef það er táknrænt fyrir meðalgengi sölu FL Group þá er það nokkuð frá hæsta verði en semt verulegur innleystur hagnaður.