Teris hefur sagt upp 18 starfsmönnum. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Teris var það nauðsynlegt til að bregðast við breytingum á viðskiptabankamarkaði og þá helst yfirtöku Landsbankans á SpKef sparisjóði en við þá yfirtöku missti Teris annan stærsta viðskiptavin sinn.
Teris er upplýsingatæknifyrirtæki og leiðandi í þjónustu við fyrirtæki á fjármálamarkaði.