Hlutabréf rafbílaframleiðandans, Tesla, hafa hækkað um rúmlega 7%, það sem af er dags, og standa þau nú í rúmlega 1.010 dollurum hvert. Hækkunin má rekja til tilkynningar Elon Musk , framkvæmdarstjóra og stofnanda Tesla, þar sem hann sagði félagið hefja framleiðslu á trukknum Semi árið 2021.

Miðað við núverandi hlutabréfverð Tesla er markaðsvirði félagsins rúmlega 187,4 milljarðar Bandaríkjadalir. Til samanburðar er markaðsvirði Ford um 27,6 milljarðar dala og markaðsvirði Toyota um 179 milljarðar dala.

Tilkynning Musk kemur í kjölfarið á því að rafbílaframleiðandinn, Nikola, er byrjaður að taka á móti bókunum fyrir nýja rafmagnspallbílinn sinn, Badger. Hlutabréf Nikola rúmlega tvöfölduðust síðasta mánudag, hækkuðu svo um 28% í gær en þau hafa lækkað um tæplega 12% í dag.