Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla opnar starfstöð  við Krókháls í Reykjavíkí dag. Áhugasamir kaupendur geta sérsniðið pantanir sínar í sérstöku hönnunarforriti á stöðinni í dag. Bílar sem eru pantaðir í dag verða afhent á fyrri helmingi næsta ári, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Tesla í dag.

Eigendur Tesla-bifreiða munu framvegis geta sótt alla þjónustu á stöðinni við Klettháls en auk þess verður hægt að prufukeyra og festa kaup á bílum innan tíðar. Í boði verða þrjár tegundir Tesla; Model 3, Model S og Model X. Ódýrasti bílinn Model 3 Standard Range Plus kostar 5.122.735 krónur en dýrasti bílinni er Model X Performance sem kostar 14.708.191 krónur.