Elon Musk svaraði í gær fyrirspurn tístara um hvenær Tesla hygðist hefja sölu á bílum sínum á Indlandi. Elon Musk, stofnandi fyrirtækisins, svaraði um hæl og sagði: „Vonandi í sumar.“

Milljarðamæringurinn tjáði sig þó ekki um nein smáatriði og vildi ekki svara þeim fjölmörgu alþjóðlegu fjölmiðlum sem reyndu að ná af honum tali.

Indland gæti þó skapað áhugaverð sóknarfæri í framtíðinni, enda búa um 1.3 milljarðar manna þar og fara lífsgæði stígandi.

Fyrirtækið hefur þó tekið fyrstu skrefin í réttu áttina, enda geta Indverjar nú orðið forpantað Tesla Model 3 bílinn.

Tesla íhugar einnig að reisa hleðslustöðvar í landinu.