Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun í dag lagt þriggja milljóna króna dagsektir á Teymi hf. þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins um breytingar á stjórn IP-fjarskipta (Tals), sem mælt var fyrir um í ákvörðun til bráðabirgða frá 26. janúar sl.

Þetta kemur fram á vef Samkeppniseftirlitsins.

Þar kemur fram að með bráðabirgðaákvörðuninni mælti Samkeppniseftirlitið fyrir um að fulltrúar Teymis í stjórn Tals skyldu víkja úr stjórninni eigi síðar en 30. janúar sl. Í stað þeirra skyldu síðan skipaðir tveir óháðir einstaklingar, tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu.

„Samkeppniseftirlitið telur að Teymi hafi virt framangreind fyrirmæli að vettugi,“ segir á vef stofnunarinnar.

„Það liggur fyrir að fulltrúar Teymis í stjórn Tals eru enn stjórnarmenn í félaginu og af því leiðir einnig að þeir einstaklingar sem tilnefndir hafa verið af Samkeppniseftirlitinu hafa ekki verið skipaðir í stjórn Tals. Ljóst er að stjórnendur Teymis hafa á valdi sínu að hlutast til um efndir á fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins en félagið hefur ekki farið að þeim.“

Þá kemur fram að í því skyni að knýja á um efndir framangreindra fyrirmæla hefur Samkeppniseftirlitið tekið ákvörðun um álagningu dagsekta vegna vanrækslu Teymis.

Skal Teymi greiða þrjár milljónir króna á dag þar til bráðabirgðaákvörðuninni hefur verið framfylgt um að núverandi fulltrúar Teymis í stjórn Tals víki úr stjórn og að nýir óháðir einstaklingar verði skipaðir í þeirra stað.