Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Teymis hf. [ TEYMI ]  á 51% hlut í IP fjarskiptum ehf. (Tal) sem tilkynnt var um 26. febrúar sl., segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Teymi hf. ber að tryggja fullan fjárhagslegan og stjórnunarlegan aðskilnað Tals og Og fjarskipta ehf. (Vodafone).

Tal mun verða hluti af samstæðureikningi Teymis frá og með 1. júní 2008.