Teymi [ TEYMI ] tapaði 221 milljón króna á fjórða ársfjórðungi, samkvæmt upplýsingum úr ársuppgjöri félagsins sem birtist eftir lok markaðar í dag, en meðalspá greiningardeildanna hljóðaði upp á 79 milljónum króna í  hagnað.

Hagnaður Teymis fyrir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA) nam milljarði króna á tímabilinu en meðalspá var 1,1  milljarður króna.

Tekjur Teymis samstæðunnar á fjórða ársfjórðungi 2007 námu 6,5 milljörðum króna, borið saman við spá greiningardeildanna sem nam sex milljörðum króna.

Hagnast um 1,4 milljarða á árinu

Hagnaður Teymis á árinu 2007 nam 1.354 milljónum króna. Innri vöxtur félagsins var 15,4% miðað við fyrra ár (pro-forma) og voru tekjurnar um 21,5 milljarðar króna. Hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 4.009 milljónum króna, veltufjárhlutfall Teymis í árslok var 1,25 og eiginfjárhlutfall 22,1%. Handbært fé frá rekstri nam 3.258 milljónum króna.

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis, segir í fréttatilkynningu að árangurinn á árinu 2007 sé umfram væntingar á fyrsta heila rekstrarári félagsins. Flest félög innan samsteypunnar hafi sýnt bestu afkomu sína frá upphafi og sjóðstreymið hafi verið mjög sterkt. „Við einsettum okkur að skila góðum rekstrarárangri og gera félagið að eftirsóknarverðum fjárfestingarkosti. Það markmið náðist því Teymis fyrirtækin uxu hraðar en markaðirnir sem þau störfuðu á og verðmæti Teymis jókst umtalsvert á árinu, þrátt fyrir miklar hræringar á fjármálamarkaði seinni hluta ársins.”

Horfur í rekstri Teymis eru góðar á þessu ári, segir í fréttatilkynningunni. Þar segir enn fremur að mikilvægir samningar hafa verið gerðir í fjarskiptahluta félagsins að undanförnu og verkefnastaða í upplýsingatæknihlutanum er góð.