Nú í september var gefið út þrítugasta tölublað hins íslenska tískutímarits Nude Magazine. Jóhanna Björg Christensen ritstýrir blaðinu sem hefur frá upphafi notið töluverðra vinsælda. Það er aðeins gefið út á netinu og er það fyrsta sinnar gerðar hér á Íslandi.

VB sjónvarp heimsótti Nude Magazine og ræddi við Jóhönnu um útgáfuna, fyrsta tölublað Nude home og mögulega útgáfu Nude Magazine á ensku.