Ráðstefna Iðnmenntar 2012 verður haldin á n.k. föstudag kl. 13:00 á Grand Hótel Reykjavík. Þar mun Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra fjalla um stefnu mennta- og menningarmálaráðuneytisins í iðn- og starfsmenntun í grunn- og framhaldsskólum. Baldur Gíslason, skólameistari sýnir yfirlit um þróun kennslu í iðn- og starfsmenntun ásamt tölulegum upplýsingum um fjölda í námi undanfarin ár.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA fjalla um þarfir atvinnulífsins og hvernig sinnir skólinn þörfum atvinnulífsins fyrir vel menntað starfsfólk. Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs HÍ ræðir um mótun iðn- og starfsmenntunar frá sjónarhóli einstaklings og atvinnulífs og hvort breytingar hafi á liðnum áratugum leitt til betri stöðu fyrir atvinnulífið og einstaklinginn. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólameistari fjallar um bestu leiðir í starfsmenntun að mati OECD.

Til viðbótar verða umræður í hópum.