Amazon vill búa til þáttaraðir byggða á þríleik J.R.R. Tolkien, Lord of the Rings. Með þessu vill Amazon feta í fótspor Game of Thrones þátta HBO sem notið hefur mikilla vinsælda.

Amazon á í viðræðum við Warner Bros. og erfingja Tolkien um leyfi til að búa til þáttaraðir byggðar á bókunum. Amazon leggur töluverða áherslu á að fá málið í gegn en Jeff Bezos, forstjóri Amazon mun hafa komið að viðræðunum.