Theodóra S. Þorsteinsdóttir tók við lyklavöldum að skrifstofu formanns bæjarráðs í Kópavogi í dag. Það var fráfarandi formaður bæjarráðs, Rannveig Ásgeirsdóttir, sem afhenti Theodóru lyklana. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ.

Theodóra stýrði einnig sínum fyrsta fundi sem formaður bæjarráðs í morgun. Í bæjarráði Kópavogs sitja auk Theodóru, sem er í Bjartri framtíð, Karen E. Halldórsdóttir og Hjördís Ýr Johnson Sjálfstæðisflokki,  Ólafur Þór Gunnarsson Vinstri grænum og Pétur Hrafn Sigurðsson Samfylkingu. Þá situr bæjarstjóri, Ármann Kr. Ólafsson, fundina án atkvæðisréttar, og Birkir Jón Jónsson, Framsóknarflokki, er áheyrnarfulltrúi.

„Það eru mörg spennandi verkefni framundan í Kópavogi og mér líst vel á starfið og fólkið sem vinnur með mér,“ segir Theodóra.

Þess má geta að Theodóra er þriðja konan í röð sem gegnir formennsku í bæjarráði í Kópavogi, hún tekur við af Rannveigu sem tók við af Guðríði Arnardóttur. Þá er meirihluti bæjarráðs Kópavogs skipaður konum í fyrsta sinn.