Björgólfur Thor Björgólfsson segir það kaldhæðnislegt að Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir og lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands hafi farið fram á vitnamál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til að kanna hvort blekkingum hafi verið beitt í kringum eignarhald á Landsbankanum. Samson, eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga, keypti 45,8% hlut ríkisins í Landsbankanum í einkavæðingu hans í október árið 2002.

„Það er mér nokkur ráðgáta hvers vegna Vilhjálmur og félagar leggjast í þá ófrægingarherferð sem umrædd málaferli augljóslega eru. Ein skýringin gæti verið sú að þeir vilji kynda bálið og láta helvítis útrásarvíkinginn hafa það. Krossferðinni skuli haldið áfram í nafni réttlætisins, en því miður gleymdist í þetta sinn að bjóða réttlætisgyðjunni með í för. Þarna eru á ferð menn sem slá sig til riddara í nafni hefndar og eru reknir áfram af eigin fordómum og andúð á öllum sem tengdust hinum föllnu viðskiptabönkum, a.m.k. mér.  Þeir treysta því að almenningur dæmi fyrir ásakanir einar, hversu langsóttar sem þær eru, og engu skipti hver niðurstaða dómstóla verður,“ skrifar Björgólfur á vefsíðu sinni btb.is og bendir á að árið 1998 hafi Vilhjálmur gert tilboð í hlut í Landsbanka í nafni „venjulegra sparifjáreigenda“. Síðar hafi komið í ljós að þeir hafi í raun verið Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, sem keypti jafnframt hlut í bankanum undir eigin nafni á sama tíma.

Lepparnir

Björgólfur vitnar til skrifa Morgunblaðsins um málið á sínum tíma.

„„Vilhjálmur segir að rétt hafi þótt að halda því leyndu að EBÍ stæði að baki tilboðinu á meðan félagið væri að auka við hlut sinn í félaginu á almennum markaði. Að öðrum kosti hefði hætta verið á að verð bréfanna hefði hækkað og þau ekki fengist á eins hagstæðu verði.“ Bankaeftirlit Seðlabankans, sem nú heitir Fjármálaeftirlitið, sá ástæðu til að kanna þessi hlutabréfakaup sérstaklega á sínum tíma. Yfirlögfræðingur eftirlitsins tók fram að það væri „afar óheppilegt að villa um fyrir markaðnum.““

Björgólfur bendir á að á þeim tíma sem Vilhjálmur hafi staðið í viðskiptunum hafi orðalagið leppur í merkingunni „að leppa einhvern“ ekki verið á hvers manns vörum. Fljótt hafi hins vegar fennti yfir kaup Vilhjálms. Síðar hafi upp ýmis dæmi um leppa og almannarómur fordæmt þá leynd og blekkingu sem fylgdi slíkum viðskiptum.

„Hvað sem því líður þá virðist ljóst að herferðinni verður haldið áfram og lítið við því að gera annað en að taka til varna á ný og vona að almenningur kynni sér málavexti en láti ekki glepjast af upphrópunum fyrirsagna,“ skrifar Björgólfur.