Þekking hf. hefur ráðið til starfa þrjá sérfræðinga á hið nýstofnað svið Viðskiptaþróun og ráðgjöf, þá Stefán Örn Stefánsson, Sigurð Pétur Oddsson og Bæring Logason. Með ráðningunni starfa nú sjö sérfræðingar í ráðgjöf á sviði upplýsinga- og öryggistækni.
Sviðinu er stýrt af Guðmundi Arnari Þórðarssyni og leiðir það ráðgjöf, sérfræðiþjónustu og verkefnastjórnun hjá Þekkingu með það að leiðarljósi að stuðla að bestu mögulegu nýtingu upplýsingatækni.
Stefán Örn Stefánsson , ráðgjafi, starfaði m.a. sem sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs Kynnisferða, sem kerfisstjóri hjá Nova og Actavis auk þess sem hann tók þátt í uppbyggingu á sjónvarpi Símans. Stefán Örn hefur hlotið fjölda vottana á hinum ýmsu sviðum upplýsingatækni. Stefán Örn mun m.a. sinna verkefnastýringu, MS Dynamics ráðgjöf og starfa sem vCIO.
Sigurður Pétur Oddsson , verkefnastjóri, hefur undanfarin sjö ár starfað sem verkefnastjóri og síðar vörustjóri hjá Sýn, áður Vodafone. Sigurður Pétur er með B.Sc í Viðskipta- og markaðsfræði og meistaragráðu í markaðsfræði frá Háskólanum á Birfröst. Hann mun leiða verkefnastýringu stærri verkefna auk þess að sinna vöruþróun.
Bæring Logason , upplýsingaöryggisstjóri, hefur undanfarin sex ár unnið að upplýsingaöryggis- og gæðamálum hjá Sýn, áður Vodafone. Bæring er menntaður rekstarverkfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með meistaragráðu í gæðastjórnun frá Florida Instititute of Technology.
Bæring mun sinna rekstri stjórnkerfis upplýsingaöryggis Þekkingar ásamt því að veita viðskiptavinum ráðgjöf varðandi málefni tengd upplýsingaöryggi.