„No comment,“ segir Theo Hoen, fyrrverandi forstjóri Marel, um forstjóraskipti hjá fyrirtækinu. Hann lætur af störfum hjá Marel í dag og hefur Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Eyris Invest, verið ráðinn í starf hans.

Hoen hefur starfað hjá Stork Food Systems og Marel í frá árinu 1986 og tók hann við sem forstjóri Marel af Herði Arnarsyni, sem nú er forstjóri Landsvirkjunar, árið 2009.

Hoen vildi ekkert tjá sig um breytinguna þegar Viðskiptablaðið innti hann eftir því í kjölfar forstjóraskiptanna í dag.