Theodóra Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Smáralindar í stað Erlu Friðriksdóttur sem tekur við starfi bæjarstjóra í Stykkishólmi 1. ágúst nk. Theodóra hefur starfað hjá Smáralind frá árinu 2000 og hefur gengt starfi þjónustustjóra undanfarin þrjú ár ásamt því að vinna að markaðsmálum verslunarmiðstöðvarinnar.

Hún starfaði áður í innflutningsdeild Byko í 8 ár. Theodóra er 35 ára gift Ólafi Viggóssyni, verktaka og eiga þau 2 börn, 7 og 10 ára. Theodóra tekur við hinu nýja starfi 1. júlí nk.