Björn Zoëga, fráfarandi forstjóri Landspítalans, segir að fyrir ákvörðun sinni, að segja upp starfi sínu, liggi ýmsar ástæður. Sumar þeirra ættu ekki að koma á óvart í ljósi þess sem hann hafi sagt og skrifað á undanförnum misserum. Þetta segir hann í bréfi sem birt er á vef Landspítalans.

„Við höfum á þessum sex árum sem ég hef verið framkvæmdastjóri lækninga og síðar forstjóri gengið í gegnum miklar breytingar á rekstrarumhverfi spítalans.  Á sama tíma hefur tekist að mæta kröfum um mikinn niðurskurð en við höfum engu að síður náð að viðhalda viðunandi þjónustustigi og árangri,“ segir Björn. Öll gögn sem fyrir liggi staðfesti þennan eftirtektaverða árangur og sé fyrst og síðast staðfesting á þeirri elju og fagmennsku sem einkenni starfið á spítala allra landsmanna.

„Ég hef ítrekað bent stjórnvöldum á að lengra verði ekki gengið í niðurskurðaraðgerðum á Landspítala og að slíkt myndi leiða okkur í ógöngur.  Ég hef lagt áherslu á þá grundvallarskoðun mína að enduruppbyggingartíminn sé núna, óbreytt ástand er ekki valmöguleiki. Með því á ég ekki einungis við að auka þurfi rekstrarfé spítalans heldur er umgjörð framtíðarstarfsemi hans einnig undir. Nýr Landspítali er m.a. forsenda þess að hér verði unnt að reka nútíma sjúkrahúsþjónustu sem laðar að hæft starfsfólk og veita góða þjónustu,“ segir Björn.

Í bréfinu þakkar Björn starfsfólki fyrir samstarfið í tíð sinni sem forstjóri spítalans. Það hafi verið ómetanlegt að starfa í þessu frjóa umhverfi og hann hafi sérstaklega kunnað að meta þá aðstoð, ábendingar og uppbyggilegu gagnrýni sem hann hafi fengið.

„Mér er ljóst að hvað Landspítalann varðar er nauðsynleg uppbygging ekki í augsýn. Meðal annars þess vegna hef ég komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að standa upp frá góðu verki. Ég er stoltur yfir árangri  spítalans og starfsfólks hans en kýs nú að takast á við nýjar áskoranir. Nýr stjórnandi fær nú  tækifæri til að leiða spítalann og það frábæra starf sem hér er unnið,“