Framboðsfrestur í forvali VG í Reykjavík vegna vegna alþingiskosninganna í vor er liðinn. Tekið er fram í tilkynningu frá flokknum, að eins og ákveðið var fer forvalið fram 24. nóvember næstkomandi. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður 17.-23. nóvember. Unnið er að gerð kynningarbæklings um frambjóðendur sem verður sendur til allra félagsmanna VG í Reykjavík.

Frambjóðendur eru þessir:

  • Andrés Ingi Jónsson
  • Andri Sævar Sigríksson
  • Álfheiður Ingadóttir
  • Árni Þór Sigurðsson
  • Björn Björgvinsson
  • Björn Valur Gíslason
  • Gísli Garðarsson
  • Ingimar Karl Helgason
  • Katrín Jakobsdóttir
  • Kristinn Schram
  • Svandís Svavarsdóttir
  • Steinunn Þóra Árnadóttir