„Ég hef ekki sóst eftir framkvæmdastjórastarfinu hjá LÍÚ og hafi einhverjir rætt mitt nafn í því sambandi er það af þeirra eigin frumkvæði og á þeirra ábyrgð,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. Viðskiptablaðið greindi frá því í dag að Ari hafi sóst eftir starfi framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) á dögunum. Hann hafi hins vegar ekki sótt formlega um starfið heldur hafi menn honum handgengnir samband við stjórnarmenn LÍÚ og lýst yfir áhuga hans á því. Ari segir þetta rangt.

„Þetta var laust til umsóknar og ég sóttist ekki eftir því. Ég ráðgeri ekki neinar breytinga á minni stöðu hjá 365 miðlum,“ segir Ari.

Athugasemd ritstjóra

Eins og fram kom í frétt Viðskiptablaðsins sótti Ari Edwald ekki formlega um starfið. Traustar heimildir blaðsins herma að menn nánir Ara hafir mælt með honum í starfið. Það hafi þeir gert með vitund Ara.