Hagnaður ÞG verktaka ehf. nam 672 milljónum króna á árinu 2016 saman borið við 447 millj­ ónir árið áður samkvæmt ársreikningi félagsins. Jókst hagnaður félagsins því um 50,3% milli ára.

Tekjur ársins námu 6.759 milljónum og jukust um 80% milli ára. Í árslok námu eignir félagsins 2.891 milljón og skuldir námu 2.401 milljón. Eigið fé nam 1.113 milljónum og var eiginfjárhlutfall 38,5%. Þorvaldur Gissurarson er forstjóri félagsins.