Í yfirlýsingu frá þingflokki Vinstri grænna lýsir þingflokkurinn yfir vonbrigðum með ákvörðun Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur. Þingflokkurinn mun halda starfi sínu ótrauður áfram og þátttöku í ríkisstjórninni, segir í yfirlýsingunni.

Yfirlýsing þingflokks VG:

„Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lýsir vonbrigðum með að þingmennirnir Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir hafi ákveðið að segja skilið við þingflokkinn.  Þingflokkurinn þakkar þeim samstarfið og óskar þeim velfarnaðar.  Í tengslum við ákvörðun þeirra hefur þingflokkurinn gengið frá breytingum á skipan í þingnefndir.

Það er von þingmanna Vinstri grænna að þrátt fyrir ákvörðun Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur um að yfirgefa þingflokkinn styðji þau áfram ríkisstjórnina og uppbyggingu landsins úr rústum nýfrjálshyggju- og einkavæðingarstefnunnar.

Þingflokkurinn mun halda starfi sínu ótrauður áfram og þátttöku í ríkisstjórninni sem hefur náð miklum árangri nú þegar við erfiðar aðstæður við að endurreisa efnahag landsins. Þingmenn VG munu hér eftir sem hingað til vinna í anda stefnu flokksins, samþykkta landsfunda og flokksráðsfunda.“