Alls var 108 kaupsamningum fasteigna þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni frá 2.-8. september samkvæmt frétt frá Þjóðskrá Íslands. Meðaltal síðustu 12 vikna er 98 samningar á viku og er þetta því yfir meðaltali. Meðalvelta vikunnar var undir meðalveltu liðinna 12 vikna, 24,8 milljónir á móti 27,9 milljónum.

Langflestir voru samningarnir um kaup á íbúðum í fjölbýli eða 84 en 21 samningur var um kaup á sérbýli og 3 um atvinnuhúsnæði.