Nú í sumar hafa starfsmenn Alþingis staðið í stórræðum við að koma öllu í gott horf fyrir þingsetningu á morgun. Það veit Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingforseti manna best. Ásta Ragnheiður hitti VB sjónvarp í blíðunni í Alþingisgarðinum síðastliðinn föstudag og ræddi um stórþrif sumarsins, eina manninn sem á grafreit sinn í Alþingisgarðinum og örlagakúlurnar sem velja þingmönnum sessunauta á ári hverju.