Það er í raun merkilegt hversu hratt og harkalega þingmenn breska Verkamannaflokksins réðust gegn leiðtoganum Jeremy Corbyn að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Bretlands í ESB á fimmtudag. Það hefur ekki farið framhjá neinum að þingflokkurinn almennt er til hægri við Corbyn, sem hefur aldrei haft stjórn á þingflokknum. Á hinn bóginn vann Corbyn yfirburðasigur í leiðtogakjöri flokksins fyrir níu mánuðum og fátt bendir til annars en að hann muni gera það á ný. Eini möguleiki þingflokksins væri að koma með einhverju móti í veg fyrir að hann verði í framboði, en til að komast á lista frambjóðenda þarf viðkomandi að njóta stuðnings 20% þingmanna og þingmanna á Evrópuþinginu. Það þýðir að hann þarf að njóta stuðnings um 50 þingmanna.
Það flækir hins vegar málið allt að það er ekki alveg ljóst af lestri reglna flokksins hvort sitjandi formaður þarf yfirhöfuð slíkan stuðning þingmanna til að komast á kjörseðilinn. Svo gæti því farið að Corbyn fengi ekki stuðning frá 50 þingmönnum, en teldi sig samt hafa rétt til að taka þátt í kjörinu. Eins verður að telja það líklegt að almennir flokksmenn munu ekki taka því vel ef þingflokkurinn reynir með baktjaldamakki að halda Corbyn frá kosningunni. Hafa ber í huga að um 60% þátttakenda í síðasta leiðtogakjöri kusu Corbyn og nýtur hann því afar mikils stuðnings í grasrótinni.
Því er líklegasta niðurstaðan sú að þingflokkurinn og flokksforystan berjist á banaspjótum í nokkra mánuði og að blóðbaðinu loknu verði staðan algerlega óbreytt. Sami leiðtogi með þingflokk sem þolir hann ekki. Framtíðin er því ekki björt fyrir Verkamannaflokkinn breska.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér .