Á árinu 2010 var seld þjónusta til útlanda fyrir 300,1 milljarð króna en keypt var þjónusta frá útlöndum fyrir tæpa 266,1 milljarð króna. Þjónustujöfnuður var því hagstæður um 34,1 milljarð króna en var hagstæður um 36 milljarða á árinu 2009 á gengi hvors árs. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Á árinu 2010 var mest selt til útlanda af samgöngu- og flutningaþjónustu líkt og árið áður. Samgöngu- og flutningaþjónusta var 145,2 milljarðar eða 48,4% af heildarútflutningi þjónustu. Stærsti liður innan samgöngu- og flutningaþjónustu voru tekjur af flugsamgöngum, 43,4% af heildarútflutningi. Næst samgönguþjónustu kom svokölluð önnur þjónusta, 29%, sem er öll önnur þjónusta en samgöngu- og flutningaþjónusta og ferðaþjónusta. Stærsti liður þar undir var tekjur af annarri viðskiptaþjónustu eins og milliliðaverslun og annarri sölutengdri þjónustu. Einnig vó þar þungt tekjur vegna einkaréttar og annarra eignarréttinda. Sala á ferðaþjónustu skilaði 22,7% af heildartekjum vegna þjónustuútflutnings á árinu 2010.

Á árinu 2010 var mest keypt frá útlöndum af annarri þjónustu, 119,6 milljarðar eða 45% af heildarútgjöldum. Stærsti liður þar undir voru útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu sem var aðallega rekstrarleiga og ýmis viðskipta- og tækniþjónusta eins og lögfræði- og endurskoðunarþjónusta, viðskipta- og stjórnunarráðgjöf og almannatengsl. Þjónustuinnflutningur samgangna var 28,9% af heild og útgjöld vegna ferðalaga 26,1%.

Samgöngu- og flutningaþjónusta skiluðu 68,2 milljarða króna afgangi en hins vegar var 32,7 milljarða krónu halli á annarri þjónustu og 1,5 milljarða krónu halli á ferðaþjónustu.

Þjónustuviðskipti voru mest til og frá ESB ríkjum, 57,3% af útfluttri þjónustu og 63,0% af innfluttri þjónustu. Jöfnuður þjónustu við ESB var hagstæður um 4,5 milljarða á árinu 2010 en var hagstæður um 20,7 milljarða á árinu 2009 á gengi hvors árs.

Danmörk, Bretland og Bandaríkin báru höfuð og herðar yfir önnur lönd hvað varðar þjónustuviðskipti við Ísland á árinu 2010, hvort sem litið er á útflutning eða innflutning á þjónustu. Danmörk var stærsta viðskiptalandið í útflutningi á þjónustu árið 2010, sala á þjónustu þangað var 11,3% af útfluttri þjónustu, en næst komu Bandaríkin með 10,7% og Bretland með 9,1%. Ísland keypti mest af þjónustu frá Bandaríkjunum á árinu 2010, eða 19,7% af heild. Næst komu Bretland með 19,6% og Danmörk með 17,2%. Þó Danmörk vegi mest af einstökum löndum hvað varðar selda þjónustu var halli á þjónustuviðskiptum við Danmörku 12,1 milljarður og halli á þjónustuviðskiptum við stærsta þjónustuinnflutningslandið, Bandaríkin, var 20,4 milljarðar á árinu 2010.