Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2014 var útflutningur á þjónustu 499,2 milljarðar en innflutningur á þjónustu 360,4 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um tæpa 138,8 milljarða. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands . Til samanburðar var hann jákvæður um 145,8 milljarða árið 2013.

Heildarútflutningur á þjónustu á fjórða ársfjórðungi 2014 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 110,9 milljarðar króna en innflutningur á þjónustu 99,1 milljarður. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 11,8 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi en var jákvæður um 18,9 milljarða á sama tíma árið 2013 á gengi hvors árs.

Samgöngur eru stærsti þjónustuliður í útflutningi á ársfjórðungnum og var afgangur vegna þeirrar þjónustu 23,2 milljarðar. Önnur viðskiptaþjónusta er stærsti þjónustuliður í innflutningi og nam halli af þeirri þjónustu 17,3 milljörðum. Halli á ferðaþjónustu var 4,5 milljarðar.

Á árinu 2014 skiluðu samgöngur 129,3 milljarða króna afgangi og ferðaþjónusta skilaði 44,8 milljarða afgangi. Á móti var halli á annarri viðskiptaþjónustu 66,6 milljarðar á árinu 2014 samkvæmt bráðabirgðatölum.